26.10.2008 | 22:35
Leikhús og dans
Ég fór í leikhús á föstudaginn. Sá Fló á skinni. Það var alveg ferlega fyndið. Vel leikið líka. Ég rúllaði alveg af hlátri. Það var samt líka svolítið fyndið að fylgjast með salnum .
Leikritið snýst um misskilning og vandræðagang honum fylgjandi og því hálfgerð endaleysa. Það þarf stundum ákveðið hugarfar til að fara að sjá slíkt leikrit. Allavega tekur maður því eins og það er og setur sig í ákveðnar stellingar, en sumir höfðu greinilega ekki gert það áður en þeir fóru. Einn fyrir framan mig var alvarlegur allan tímann. Stökk ekki bros. Ég vorkenndi þeim sem var með honum, því þann einstakling langaði til að brosa en geðillska sessunautarins dró allan mátt úr honum. En ég skemmti mér samt einna best yfir þeim sem sat fyrir aftan mig, því rétt fyrir hlé bárust mjúkar hrotur yfir öxlina á mér. Ég ætlaði varla að trúa þessu, því háfaðinn frá hlátrasköllunum í salnum voru svo mikil stundum að ég heyrði ekki hvað leikararnir sögðu. En jú, maðurinn hraut.
Eftir hlé, byrjaði hann aftur að hrjóta. - Geri aðrir betur.
Við borðuðum á Kringlukránni áður en leiksýning hófst og þar fékk ég kengúrukjöt í fyrsta skipti.
- Það var nammigott.
Það var síðan ákveðið að taka skemmtanalífið með stæl þessa helgina, þá loksins var farið til þess og við vinkonurnar fórum á Players á laugardagskvöldið. Þar var hljómsveit sem heitir Dresscodes að spila. Ég vissi ekki að hún væri til, en inniheldur Davíð Smára sem var einu sinni í idol-keppninni. Kannski kannast einhverjir við hana þó ég geri það ekki. Það er sko ekki að marka,- fylgist ekki með í þessum bransa.
Hún var fanta-góð. Og við dönsuðum alveg stanslaust í 3 klukkutíma,- líka í hléinu!
Geggjað stuð.
Um bloggið
Hulda Brynjólfsdóttir
Tenglar
Áhugaverðar síður
- ABC-Barnahjálpin Hægt að styrkja barn mánaðarlega.
- Heiðmar Heiðmar er ljóðamaður góður og bloggar af snilld.
- Kvennakórinn Ljósbrá Heimasíða kvennakórsins Ljósbrá.
- Kærleiksvefur Júlla Notaleg og hlýleg síða um mörg og misjöfn mannleg málefni.
- Vinnustaðurinn minn Heimasíða skólans sem ég vinn við.
- Húgó sáli Húgó hefur svo margt gáfulegt fram að færa.
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.