30.11.2008 | 20:03
Long time, no...
Það er orðið soldið langt síðan ég setti eitthvað hérna inn. Það gerist nú alltaf öðru hvoru og allt í lagi með það. Núna er það þó útaf því að ég hef ekki getað setið mjög lengi í einu við tölvu, eða setið yfirleitt, eða staðið, eða gert neitt annað eiginlega...
Jú, ég hef komist nokkuð þokkalega á milli lækna, heilsugæslustöðva, nuddara og ráðgjafa í heilsufræðum...
...án árangurs.
Svo virðist vera sem ég sé komin með brjósklos. Ég hélt alltaf að svoleiðis nokkuð kæmi hægt og hægt og maður finndi til smátt og smátt meira og meira, en ekki bara einn daginn "bomms!!!" bara stanslausar kvalir án fyrirvara og án stórra hléa á milli. Ég á að fara í sneiðmyndatöku eftir helgina og vona að þá komist niðurstaða í málið. Þá fæ ég staðfestingu á því hvort þetta er brjósklos eða eitthvað annað.
Þar sem það er markmið hjá mér að vera jákvæð, þá upplifi ég núna dálítla erfiðleika á því sviði. Það er einhvernveginn ekkert auðvelt að vera jákvæður þegar maður er með stanslausa verki.
En einhver sagði einhverntímann; "Allt sem ekki drepur þig, herðir þig!" og ég trúi því að nú sé verið að vinna í því að herða mig. Enda sennilega á því að verða algjört hörkutól...
...það hlýtur að vera jákvætt!?
Um bloggið
Hulda Brynjólfsdóttir
Tenglar
Áhugaverðar síður
- ABC-Barnahjálpin Hægt að styrkja barn mánaðarlega.
- Heiðmar Heiðmar er ljóðamaður góður og bloggar af snilld.
- Kvennakórinn Ljósbrá Heimasíða kvennakórsins Ljósbrá.
- Kærleiksvefur Júlla Notaleg og hlýleg síða um mörg og misjöfn mannleg málefni.
- Vinnustaðurinn minn Heimasíða skólans sem ég vinn við.
- Húgó sáli Húgó hefur svo margt gáfulegt fram að færa.
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi þér vel í öllu þessu ástandi.
Gísli B. Gunnars. (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.