9.6.2008 | 19:49
Ferðahugur
Ég var í Glascow. - Aðallega til að skoða skóla. Skoðaði eina 4 skóla og það var mjög skemmtilegt. Fróðlegt og margar hugmyndir sem ég náði mér í til að stela og nota sjálf .
En svo var líka verslað og borgin skoðuð og einn dagur notaður til að heimsækja Edinborg sem var mjög gaman, enda falleg borg.
Það sem uppúr stendur er samt rútuferð um skosku hálöndin eða að þeim og sigling á vatninu Loch Lomond. Það var mjög gaman að sjá Skotland frá öðru sjónarhorni en í H&M og upplifa sveitastemninguna í Hálöndunum. Sjá hálenskar kýr og orginal Skota í pilsum og öllum græjum.
Ég komst að því að í raun er margt líkt með okkur Íslendingum og Skotum. Til dæmis þjóðarstoltið. Þeir ganga samt eiginlega skrefi lengra því þeir telja með alla sem eiga ættir að rekja til Skotlands, þegar þeir tala um fjölda Skota. Þeir semsagt tala um Skota í Skotlandi og Skota í heiminum öllum. Þeir halda líka fast í ættarnöfn sín sem flest byrja á Mac,- allavega ef þeir koma úr Hálöndunum, en Mac þýðir sonur. Aulaðist ekki til að spyrja hvernig dóttir hljómar eða hvort konur haldi ættarnöfnum sínum... .
Maður er alltaf smá stund að melta allt sem maður innbyrðir í svona ferðum. En niðurstaðan er samt; góð og gagnleg ferð.
Mæli með Skotlandi.
Bara eins og að fljúga á Egilsstaði, gengið í vélina utanfrá. Sumir reyna að hafa í sig og á með því að spila á sekkjapípur á götuhornum.
Kastalar um allt. Þarna má líka finna flottasta golfvöll Skotlands, en eins og flestir vita, þá kemur golf frá Skotlandi... Eins og wiský
Og svo var það hann Hamish sem er hálenskt naut og ákaflega geðugur að auki.
Um bloggið
Hulda Brynjólfsdóttir
Tenglar
Áhugaverðar síður
- ABC-Barnahjálpin Hægt að styrkja barn mánaðarlega.
- Heiðmar Heiðmar er ljóðamaður góður og bloggar af snilld.
- Kvennakórinn Ljósbrá Heimasíða kvennakórsins Ljósbrá.
- Kærleiksvefur Júlla Notaleg og hlýleg síða um mörg og misjöfn mannleg málefni.
- Vinnustaðurinn minn Heimasíða skólans sem ég vinn við.
- Húgó sáli Húgó hefur svo margt gáfulegt fram að færa.
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Velkomin heim frá Skotum!
Hallmundur Kristinsson, 9.6.2008 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.