Ástir Pílu

Hún Píla er nú alveg óskaplega falleg tík og nú hefur hún náð að heilla hundinn hér á næsta bæ,- mér til mikillar armæðu Angry.

Ég ætla sko EKKI að fá hvolpa eftir páskana, þannig að hún fer út í strangri lögreglufylgd og má ekki víkja frá mér.

Það er ótrúleg þrjóska sem grípur um sig þegar hormónarnir eru á svona flugi og þráhyggjan í hundinum er yfirgengileg. Þessi ágæti hundur, sem er reyndar mjög huggulegur Íslensdingur og virðist ekki vera svona stanslaust kjaftandi kjáni eins og þeir eru nú sumir, bíður fyrir utan húsið allan sólarhringinn og liggur helst við eldhúsgluggann og horfir inn og ýlfrar allur og skelfur ef Pílu bregður fyrir, en setur niður rófuna og læðist nokkra metra í burtu ef hann sér mig.

Hann er alveg óskaplega mikið krútt reyndar þar sem hann liggur þarna úti og bíður eftir að Píla komi út.

Ég var annars spurð hvort ég vildi halda henni undir annan border collie hér í sveitinni sem eigandann langaði að yngja upp. En ég átti mjög gott samtal um það við son minn (hann er bráðum 12 ára og langar alveg að fá hvolpa). Niðurstaðan kom frá honum; "Ef við ætlum ekki að eiga neinn hvolpinn sjálf, þá held ég að það sé nú langbest að sleppa því!"

- og það er niðurstaðan!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hulda Brynjólfsdóttir

Höfundur

Hulda Brynjólfsdóttir
Hulda Brynjólfsdóttir

Móðir, kennari og náttúru-unnandi.   

 hulda67@gmail.com

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • P1010079
  • ...di_p1010079
  • Tekið hef ég hvolpa tvo...
  • P1010098
  • P1010070
  • P1010053

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 25896

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband