Ljóði deilt með öðrum.

Af því að mér var nú bent á að deila ljóði með ykkur hinum, þá ætla ég að setja hér inn limru (eða ég held að þessi tegund ljóða heiti limra) sem mér finnst mjög falleg.

Hún er eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur sem kallaði sig Erlu. Mér skilst að hún hafi einhverntíman búið á Selfossi.

Þegar leita skal gulls.

Ef þreyttur og vonlaus þú grefur til gulls,

þá gæt þess, að seint verður leitað til fulls.

Það liggur oft dýpst sem er dýrmætt að ná,

og dylst þér um eilfífð, ef hörfarðu frá.

Í sérhverri mannssál má grafa til gulls,

en gæt þess, að seint verður leitað til fulls.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Þetta var bæði flott og djúpt.

ES

Eyjólfur Sturlaugsson, 11.11.2007 kl. 10:41

2 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Ónei, ekki er það limra.

Hér sérðu limrur:

http://jona-g.blog.is/blog/jona-g/

Hallmundur Kristinsson, 12.11.2007 kl. 22:51

3 Smámynd: Hulda Brynjólfsdóttir

Nei, ég hélt það líka,- þetta hljómar betur hjá þessari Jónu og samræmist öðrum upplýsingum sem ég hafði.

En veistu þá hvað svona vísur heita? Mér þætti gaman að vita það.

Hulda Brynjólfsdóttir, 13.11.2007 kl. 14:08

4 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Raunar veit ég það ekki. Ég mundi kalla þetta ljóð eða kvæði fremur en vísu. Ég get reynt að komast að því hvort þetta form kallist sérstöku nafni.

Hallmundur Kristinsson, 13.11.2007 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hulda Brynjólfsdóttir

Höfundur

Hulda Brynjólfsdóttir
Hulda Brynjólfsdóttir

Móðir, kennari og náttúru-unnandi.   

 hulda67@gmail.com

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • P1010079
  • ...di_p1010079
  • Tekið hef ég hvolpa tvo...
  • P1010098
  • P1010070
  • P1010053

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 25901

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband